fimmtudagur, desember 23, 2004
SmellyCat
Ég er illa lyktandi en það á víst við um fleiri í dag. Fjórir klukkutímar í skötubrælu sitja lengi á manni. Ekki skil ég hvernig fólk getur étið þetta; vibbi. Mig sveið í nefið fyrsta klukkutímann en svo var ég orðin ónæm fyrir þessu. Hressandi. Svo eru bara að koma jól. Þau verða skrítin því það vantar hana Lórý mína. Held að þetta verði erfiðara fyrir mig heldur en hana sem er ein útí heimi. En ég er líka skrítin.
Flottur jakki...
þriðjudagur, desember 14, 2004
OK
Ég er formlega farin á límingunum.
Bananaphone
Það hlaut að koma að því. Það var ekkert óhappa búið að ske í dag, enda er ég ekki búin að fara út fyrir hússins dyr. En núna varð síminn minn batteríslaus og ég get með engu móti kveikt á honum aftur. Búin að hlaða hann helling en allt kemur fyrir ekki. Fussum svei.
mánudagur, desember 13, 2004
Only in the USA!
Ég má til með að deila með ykkur einni sögu sem hann Pétur benti mér á á blogginu hjá Árna frænda hans. Þetta kom fyrir vinkonu kærustunnar hans Árna:
Málið var það að hun for til Californiu til fjölskyldunnar sinnar yfir thanksgiving. Svo turfti hun að passa 2 born (3 og 4 ara) fyrir vinafolk foreldra sinna, heima hja vinafolkinu, eitt laugardagskoldid. Hun passadi bornin allt kvoldid og lek vid tau og gaf teim ad borda. Tad eina sem pirradi hana allt kvoldid var einhver trudabruda sem stod vid hlidina a sjonvarpinu inni stofunni, henni fannst trudurinn eitthvad adeins of creepy, hun gat eiginlega ekki akvedid hvort hun vaeri bruda eda stytta og pældi voða litid i tessu...svo um 10 leytid hringir vinafolkid og spyr hvort se ekki i lagi ad tau verdi aedeins lengur..vinkonan segir ekkert mal, og spyr hvort tad se ekki lagi to hun setji teppi eda eitthvad yfir trúðastyttuna inni stofunni, fólkid sagdi vid hana, "en vid eigum enga trúðastyttu", hun svaradi, " ju tessa sem er vid hlidina sjonvarpinu"..ta segir folkid.."taktu bornin, hlauptu ut og hringdu i 911", hun gerir tad og löggan kemur....Heyrdu ta kemur i ljos ad trudurinn er ekki brúda eda stytta,,tetta var gedklofa dvergur sem var buinn ad lifa i husinu i heila viku og leika vid bornin, og hann klæddi sig bara upp sem trúður.....Creepy stuff!
Ég er búinn að melta þetta í nokkra daga og það fer ennþá um mig hrollur. Annars er maður bara nett að fara á límingunum... hressandi.
fimmtudagur, desember 09, 2004
Geisp
Þá er fyrsta prófið búið. Ég ætti að vera búin með tvö próf en ég fór ekki í það fyrsta. Hvers vegna ekki? Því ég svaf yfir mig! Geri aðrir betur, eða verr. Það er nú búið að ganga á ýmsu undanfarið, ég er greinilega undir einhverri óhappastjörnu þessar vikurnar og er alvarlega farin að hugleiða að birta hér á síðunni óhappasögur líkt og þær sem ToggiPop birti á sinni síðu við miklar vinsældir. Í dag hefur þó allt gengið stóráfallalaust. Ástkær móðir mín hringdi í morgun til að vera viss um að ég væri komin á fætur og ég mætti næstum því á réttum tíma í prófið (er ALLTAF að minnsta kosti þremur mínútúm of sein, sama hvert ég er að fara!). Prófið gekk, ætli hvorki að segja af eða á, fullt af svona lúmskum leiðinda spurningum en ég held að þetta hafist alveg örugglega. Náði reyndar ekki alveg að klára en það átti víst við um flesta, því tíminn var af skornum skammti.
Auli dagsins: Ég fyrir að setja báðar linsurnar í sama augað! Núna er ég búin að nota linsur í næstum tíu ár (váááá... hvað er maður eiginlega gamall!) en þetta hef ég aldrei gert áður. Setti fyrst í hægra augað (geri það alltaf) og svo tók ég næstu og setti hana LÍKA í hægra augað! Stóð svo í smástund fyrir framan spegilinn og skildi ekkert í því afhverju allt var í móðu. Síðan tók ég eftir því að ekki var sami litur á augunum (er með litalinsur) og hélt kannski að ég hefði misst eina linsuna. En neinei, þá var hún bara þarna í auganu á mér, hjá hinni linsu vinkonu sinni. Djöfull eiga þær eftir að hlæja að mér í nótt þegar þær liggja í linsuvökvanum og rifja upp atburði dagsins. Er það ekki annars það sem linsur gera á nóttunni?
þriðjudagur, desember 07, 2004
auli.is
Úff...
þriðjudagur, nóvember 30, 2004
Bad Hair-Day!
Stundum getur maður nú verið pínu sjúskaður! Og það eina sem Birna sagði var: Hvað gerðir þú við nefið á þér?

mánudagur, nóvember 29, 2004
Bananas in pajamas
Maður á kannski ekki að segja frá þessu en ég er ennþá í náttfötunum. Borðaði meira að segja sunnudagssteikina á náttfötunum, já það eru sko ekki mikil formlegheit á þessu heimili. Var hjá gamla settinu í nótt og er bara búin að hafa það huggó og læra líka slatta. Tölvan mín er með flensu, þannig að ég er í tómu tjóni. Ætli maður drífi sig samt ekki með hana til læknis á morgun, ég gæti trúað að það þurfi að leggja hana inn í nokkra daga. Svo á maður kannski ekki að heldur að segja frá því en ég er búin að fá tvö súkkulaðijóladagatöl! Hannes gaf mér eitt Barbie dagatal sem er alveg súper! Það inniheldur nefnilega 32 súkkulaðimola því það telur niður til nýársdags. Svo kom móðir mín færandi hendi í dag með annað dagatal handa mér! Svei mér þá, ég held að ég hafi aldrei áður átt tvö dagatöl! En núna er víst kominn tími til að klæða sig og bruna aftur í borgina og hlusta á ferðageislaspilarann! (Já maður verður að bjarga sér þar sem það er bara kasettutæki í bílnum og ég orðin pínulítið þreytt á báðum kasettunum sem ég á!).
laugardagur, nóvember 27, 2004
Fjör
Kókið farið að kikka inn og maður er allur að hressast! Og þegar ég segi kók þá á ég við Diet Coke framleitt af Vífilfelli hf.
úldin.is
Vansvefta og frekar mygluð en ég mætti samt uppí skóla í morgun til að læra. Það er skemmst frá því að segja að ég er bara búin að vafra um netið og spjalla á msn. Það stendur samt allt til bóta (Tóta ljóta ekur um á Skóda... gott lag). Mér svelgdist illa á morgunkorninu í morgun þegar ég sá mynd af forsíðu DV í Fréttablaðinu. Bubbi og Brynja að skilja. What is the world coming to?! Ég heyrði einmitt Bubba spila nokkur lög á jólahlaðborði í Versölum í gær (var samt bara að vinna), hann getur þetta ennþá kallinn. Maður komst líka í smá jólafíling við að fá hangiket og uppstúf þegar, gerðist síðan svo djörf að smakka ál. Það var svona eins og að borða... uhh fisk!
fimmtudagur, nóvember 25, 2004
Betra er seint en aldrei!
Þar sem maður gæti nú verið að dunda sér við lærdóminn og solleis ákvað ég loksins að láta verða af því að henda í albúm myndunum frá interrail ferðinni sem var farin í sumar. Það er fínt í skammdeginu að ylja sér við minningarnar um sól og sumaryl. Ef þið viljið kíkja þá eru myndirnar hérna.
föstudagur, nóvember 19, 2004
Öss öss öss
Tyson var sko ekki sáttur við mig í morgun. Hann var greinilega eitthvað móðgaður yfir því að ég skyldi ekki fara á honum í skólann í gær, þannig að í morgun var hann búinn að læsa stýrinu og það var sama hvað ég juggaði því, ég gat ómögulega losað það nóg til að geta snúið lyklinum í svissinum og startað bílnum. Ég þurfti því að labba í skólann með blautt hárið sem er örugglega ekki gott fyrir viskíröddina sem ég vaknaði með í morgun.