sunnudagur, september 08, 2002
Svo sá ég ekki Leonicie í gær :o( Hún var víst að performa á föstudaginn og fór á kostum með því að detta og missa hárkolluna en það má lesa nánar um það hérna ;o)
Hjúkkit að Mystery Man aka. Gunni Lónlí var á ljósanótt í gær! Hann hefur séð mig því allt í einu í gær fór hann að senda aftur skilaboð eftir langt hlé! Ég var ekkert að svara því sem hann var að senda um kvöldið en svo kom þetta kl. 8 í morgun:
Mystery Man: Á ég að segja þér hver ég er?
Moi: Ég veit hver þú ert Gunnar Ingi og ég og fleiri höldum að þú ættir að leita þér hjálpar!
Mystery Man: Því miður nei, gettu nú betur. En ég veit samt hver hann er. Nei, ég er fjórum árum eldri en þessi Gunnar.
Ég hugsaði bara með mér WHATEVER! og nennti ekki að svara og þá kom
Mystery Man: Atli Már Gunnarsson takk fyrir 27 ára
Hvað er eiginlega að gaurnum? Ég hálfvorkenni honum bara! Ég varð samt náttúrulega að athuga hvort þetta gæti passað hjá honum en greyið hvað hann er vitlaus! Það er einn Atli Már Gunnarsson á landinu og hann býr útá landi og er fæddur '80. Svo er einn sem heitir Atli Mar Gunnarsson en hann er fæddur '72 og því að verða þrítugur! Hélt hann virkilega að ég myndi ekki tékka á þessu!?!?! Enívei ég vona bara að greyið geri eitthvað í sínum málum... og ég vona að ég sé ekki of harðorð í hans garð, ég get bara ekki að því gert!
laugardagur, september 07, 2002
Hvar er síminn minn???
Muahahahahaha... var að rifja upp "ég vil hvítvín", "ég vil rauðvín" og svo held ég að hafi komið "ég vil svartvín"! LOL (",) Veit ekki hvort skuli skrá sem atriði kvöldsins þetta vín-atriði eða þegar hún fór að mæla skóstærðina hjá gaurunum: "Já, þetta er nokkuð gott" og svo við næsta "nei, þetta er ekki alveg jafngott"! LOLLOLLOLLOLLOLLOLLOLLOLLOLLOLLOL (";)
Þá er maður kominn í sveitina! Gamli kallin átti ammæli í vikunni og það verður smá kaffi á eftir í tilefni þess. Ætli maður verði svo ekki að kíkja niðrí bæ fyrst að það er þessi Ljósanótt! Er samt ekkert að deyja úr spenningi... nema fyrir að sjá Leoncie, held að hún sé á dagskrá kl 21. Ég vona að Viktor verði með henni, þau eru svo sæt saman ;o) Annars er ég mest spennt fyrir 15% afslætti í Mangó, hef ekki komið þangað inn síðan ég veit ekki hvenær! Örugglega síðan Don Cano gallarnir voru í tísku! Það hlýtur að vera hægt að gera góðan díl þarna (",)
Það rættist heldur betur úr rólegheitum gærkvöldsins þegar ég, í mesta sakleysi mínu, bauðst til að skutla Kópsen og Biddu á djammið niðrí bæ! Ég hafði verið að passa tvo gríslinga og svo var maður var bara rifinn úr jogginggallanum og skipað að troða sér í þröngar buxur og þrengri bol, skellt í stígvél og spasslað í smettið! Og þetta allt kl. 3:30 að nóttu til! Þetta var samt þrælgaman því Bidda var svartari en blámennirnir í Afríku fyrir þrælastríðið! Held að hún hafi afrekað að klípa í rassinn á 60% karlmannnanna sem voru inná Astró! Og það var eftir að hún hafði talað við alla sem við mættum þegar við rúlluðum niður Laugaveginn á jeppanum mínum! Sem betur fer er ég að skipta honum út fyrir reiðhjól! Pjúra snilld Bidda mín, þú ert frábær :-)
Hjúkkit að maður er að blogga á þessum tíma sólarhrings! Ég hef samt engu að blogga... *geisp* ég er bara sybbin!
föstudagur, september 06, 2002
Ég ætla sko pottþétt að sjá Leoncie þegar hún syngur á Ljósanótt á laugardaginn (",) Viktooor... jú ar mæ loveeer ;o)
fimmtudagur, september 05, 2002
Allir sem vilja horfa á ruglaðar klámmyndir eru velkomnir í heimsókn til mín á stúdentagarðana! Ég fann þessa líka sótsvörtu stöð í gær þegar ég var að flakka á milli Skjás1 og PoppTíví! Maður sér alveg hvað er í gangi þótt þetta sé ruglað og ég held að það muni enginn gráta það að hljóðið skuli vanta... fólk verður þá bara sjálft að stynja með ;o)
Já, það er bara allt að verða vitlaust ;o) Maður þarf að láta sjá sig á svo mörgum stöðum! Eins og t.d. sjávarútvegssýningunni í Smáranum, sægreifarnir vildu endilega fá landgreifana tvo, mig og Kópsen til að mæta og hleypa smá fútti í þetta! Sem við gerðum að sjálfsögðu ;o) Svo er bara endalaust verið að snattast og reyna að redda hinu og þessu! Fór að láta þinglýsa leigusamningnum mínum í dag en þetta er dáldið spúkí því ég fékk stimpil þar sem stóð að þessu hefði verið vísað frá þinglýsingu vegna blablabla... ég er allavega ekki alveg að skilja þetta! Ætli maður hendi þessu ekki bara í mömmu þína og viti hvað hún segi! Svo eru ég og hún að fara að gera dáldið spennandi í kvöld!!! Það má samt ekki segja frá því alveg strax... við verðum bara að sýna afraksturinn seinna (",)
Er svona mikið að gera hjá þér að það er bara ekkert blogg í marga daga??
þriðjudagur, september 03, 2002
Það er sótsvart ástand í þessari stofnun sem kallar sig Háskóla Íslands! Það eru engir tímar búnir að vera á réttum stað, maður þarf alltaf að hlaupa á milli bygginga, og núna áðan þá bara var enginn tími! Samkvæmt nýjustu stundaskrá þá var hann í gær! Þannig að nei, ég hitti ekki Frammarann vin þinn! Sem er gott því ég á eftir að þrífa Fram hanskana en þegar ég er komin með þá á hendurnar þá verð ég enga stund að láta hann fá númerið hjá þér ;o)
*geisp* Ég er ekki alveg að meika það að mæta í tíma kl.8! Og mér finnst frekar harneskjulegt að láta mann rífa sig á lappir og svo er bara verið spjalla eitthvað í hálftíma og svo má maður bara fara heim og næsti tími ekki fyrr en kl 15 eða 16! En það er fínt að fá smá frí á milli, ég er allavega að gæla við að fara aftur heim og leggja mig aðeins :) Síðan tékkar maður á Kópsen, við ætlum að heiðra Smáralindina með nærveru okkar ;o) Kannski kemur Sweif líka ef hún er ekki of upptekin við að rifja upp þýska málfræði! Sem minnir mig á að maður ætti kannski að fara að athuga með einhverjar skólabækur :-þ Hillary við getum síðan skoðað saman myndir og lært smá spænsku... pantalonas=panta langar buxur! baccalao=bæklaður saltfiskur (finnst þér ekki mögnuð myndin af saltfisknum í hjólastólnum?!?) Já, þessi kennari er engu líkur og þá eigum við nú ekki bara við kennsluaðferðinrnar!!!
mánudagur, september 02, 2002
Well, well, well... þá er fyrsti skóladagurinn búinn! Ég fór í sálfræði í dag og fer sennilega aftur í það á morgun... nema ef mér skyldi detta í hug að fara í félagsfræði! Það er óþolandi að vera svona óákveðinn :-þ En þetta reddast krakkar mínir! Það sagði allavega hann Ingólfur í gamla daga þegar ég var í stæ 103 ;o) Og þetta hefur nú allt saman reddast hingað til (",) Svo bauð ég fyrrum sambýliskonum mínum í mat áðan, það var nú samt meira fyrir mig heldur en þær! Ég nennti nebbla ekki að borða ein sko ;o) En núna er skólinn byrjaður og allt meðfylgjandi þannig að ætli maður kíki ekki með fyrrverandi sambýlingunum á Brennsluna að hitta ChocoSel og BdsmSel (",) Stei blekk end sjó somm fokkíng ríspekt...
sunnudagur, september 01, 2002
Vááá... það verða sko ALLIR að skoða negramyndirnar sem Hillary tók um helgina!!!
Núna er maður sko algjörlega OFSOFINN og fínn! Bíð bara eftir myndunum! Ert þetta ekki að fara að koma Hillary mín?!?! ;o) Segi nú bara svona, ég skal hætta með þennan áróður! Ég held að það sé nóg að hafa áróðursmanninn, ég vil ekki vera þekkt sem áróðurskonan :-þ
föstudagur, ágúst 30, 2002
Jæja, þá er vinnan búin! Sem er gott... i bili allavega :o) Ég sé ekkert annað í stöðunni en að sletta ærlega úr klafunum þessa síðustu helgi sumarsins (",) íííhhaaa...
ómægod... ég trúi ekki að mér hafi tekist að breyta letrinu hjá mér! Þokkalega sátt við sjálfa mig núna ;o)
Afhverju ætli Ferðaþjónustan að Snorrastöðum í Borgarnesi sé að reyna að ná í mig?!?! Sótsvart! Og vill einhver minna mig á að kaupa mér lottómiða í dag! Samkvæmt dagatalinu þá er happaföstudagur hjá mér í dag (",)
*garg* Hjúkkit að kellingarnar hérna í vinnunni eru að láta mig skoða eyrun á einhverjum strák! Reyndar ekki bara einhverjum strák því þetta flugfélags/júdókappinn hennar Birnu ;o) Það gæti nú orðið gaman ef að þau hittust í kvöld! En ég sé ekkert athugavert við eyrun á honum...
Hjúkkit að ég var að fá spá fyrir kvöldið:
O - Hirðfíflið
Sakleysi og ekki síður traust ríkir hér. Þú virðist leyfa þér að skemmta þér vel við nánast hvað sem þú tekur þér fyrir hendur á sama tíma og þú ert óhrædd/ur við hverskyns áhættur. Fortíð þín gæti verið ástæða fyrir hegðun þinni í dag og líðan þinni almennt.
Spenna, metnaður og áhyggjulaust viðhorf til tilverunnar eru áherslurnar sem koma hér sterklega fram. Þú hefur varðveitt barnið með sjálfinu sem er af hinu góða en þar með ýtir þú undir áhuga þinn á umhverfi þínu með opnum huga óháð hættum sem kynnu að tengjast framhaldinu.
Hér er um að ræða ómælt kæruleysi og ekki síður kjark sem er nauðsynlegur til að vera fær um að lifa óháð/ur og áhyggjulaus hvern dag án þess að huga að því hvað framtíðin ber í skauti sér.
Nýtt ævintýri er um það bil að hefjast. Hér gæti áhætta tengst framhaldinu. Þú ert um það bil að stíga næsta skref sem mun án efa hafa áhrif á gang mála. Framkvæmd fylgir frami en aðgát er ávallt af hinu góða.
Ég er sérstaklega að fíla partinn um að fortíð mín gæti verið ástæðan fyrir hegðun minni í dag! Ég á mér náttla mjög vafasama fortíð ;o)
Noh noh noh... bara kominn föstudagur og síðasti vinnudagurinn í þokkabót! Svei mér þá, ég er alveg að fíla þetta (",) Ég hef það líka á tilfinningunni að það verði heitt í kolunum í kvöld! Það verður fínt að tsjilla á kantinum med Breezer í annari og Mud Slide í hinni ;-) Yeah Baby! Annars ég dáldið bleik! En þú?
fimmtudagur, ágúst 29, 2002
Jú, ég ætlaði að segja ykkur hvað ég fíla lækninn hérna í bankanum! Það er bara brillíant! Maður hringir bara og kynnir sig og segir honum hvað maður vill láta hann skrifa uppá og svo spyr hann bara í hvað apótek maður vilji sækja pöntunina! No questions asked (",)
Ég man ekki hvað ég ætlaði að segja...
Ég man í gamla daga þegar ég var ung þá voru bara til fjóra bragðtegundir af Extra jórturleðri. Núna voru þeir að bæta við níundu bragðtegundinni! Það er spurning um að fara aftur að safna extrapökkum og nota sem veggfóður! Ég meina það yrði svo miklu skemmtilegri litasamsetningin núna ;o)
Ég er veit ekki alveg hvað ég er komin útí hérna á Msn-messenger! Annað hvort er Víglundur Draghalti sá allra sótsvartasti einstaklingur sem gengið hefur á jörðinni eða þá að ég var í alvöru að eiga samskipti við einhvern norsara! Mér var allaveg sagt að skoða þessa síðu!
Jájá, slúðrið um mig eins og þið viljið (",) En ég verð að vera sammála því að það er vissara að passa uppá hana Eiríku beibí þegar hún eldist! Ég hef samt ekki miklar áhyggjur ef að Siggi verður með haglabyssuna á kantinum eins og Andrea minntist á einu sinni ;-)
Ég heyrði Eyjalagið í hádeginu í gær og ég var næstum farin að gráta af söknuði *snökt* Og það eru 337 dagar í næstu Þjóðhátið! Ég get ekki beðið! Heyrði svo á FM 95,7 í morgun að í gær hefði verið sýndur þáttur um Þjóðhátíð 2002 á Popptíví! Og ég var ekki látin vita! Ég er ekki sátt! En þetta verður víst endursýnt í kvöld og annað kvöld þannig að maður verður sennilega að rúlla með sjónvarpið í nýju íbúðina í kvöld og plögga því þar :o) Held samt að maður verði soldið svartur að horfa á þetta einn þannig að ef einhvern langar að kíkja á mig þá er það hjartanlega velkomið! Ég veit að þú myndir hafa mjög gaman af þessum þætti þar sem það sést víst í sprellann á félaga þínum Þrölla 3000 ;o)
ohhhh... frændi þinn er algjör krúsídúlla (",)
Jæja, þetta virðist vera í lagi núna!
Afhverju er þetta ekki að virka núna?
Hjúkkit að það er einn dáldið tjöbbí háskóladúddí á svæðinu með svona Scout skólatösku eins og maður fékk þegar maður byrjaði í skóla! Ég man að mín var SKÆRBLEIK og mér þótti hún ýkt flott :o) Ég man líka að Sweif átti alveg eins tösku, nema hennar var blá og miklu betur farin! Ég var búin að rústa minni eftir 2.eða 3.bekk en taskan hennar Sweif dugði henni út 6.bekk ef ég man rétt! Ég man að mamma og pabbi voru ekkert að fatta hvernig stóð á því að mín taska var ónýt miklu fyrr (",)
Ég er smám saman að reyna að koma mér fyrir í nýju íbúðinni. Fór í gær með eitthvað af dóti, eins og t.d. strauborðið, því ég strauja svo mikið! Gítarinn,því ég er svo dugleg að æfa mig! Línuskautana, því ég er alltaf að skauta og boxhanskana, því ég vona að George of the Jungle fari að láta sjá sig! Svo ef ég þarf að hræða fólk þá er gott að geta gripið til hanskanna ;o)
miðvikudagur, ágúst 28, 2002
Auðvitað kem ég líka!!! Mar má náttla ekki missa af neinu! Ég verð bara vera búin að flytja rúmið svo ég geti haft næturgest ;o) Vil ekki vera að raska svefnró þinni! (",) Samt finnst mér dáldið dapurlegt að hugsa til þess að ævintýrin í Hörgshíðinni taka senn enda... *snökt* Ég á eftir að sakna þessa að búa ekki með ykkur, Sweif og Kópsen *snökt* En við verðum bara að bralla eitthvað skemmtilegt á Stúdentagörðunum í staðinn :o) Og ég skal bjóða ykkur í mat bráðlega, ég var nebbla að búa mig undir veturinn í gær og keypti 15 pakka af núðlusúpum!!! :o} Það er jú einkennisfæða háskólanema! Og þetta er ekki bara einhver núðlusúpa, hún er eins og við viljum hafa hana, fitulítil og keypt á góðum díl ;o)
Mikið var að þetta komst aftur í lag! Ég var alveg komin með skjálfta! Og svo er það dæmigert að það er ekkert búið að vera að gera í allan dag en núna þarf fólk endilega að koma í hrönnum! Og það með smámynt! Það ættu að vera reglur sem segja að það sé bannað að koma með klink svona stuttu fyrir lokun!
þriðjudagur, ágúst 27, 2002
Hvað ætli samstarfsfólk mitt myndi segja ef það vissi að ég væri að lesa þetta meðan ég er í vinnunni! Og hvernig er það, er það ekki framhjáhald ef maður er að leika sér með einhverjum af sama kyni?!?!? Hmm... bara smá pæling...
Tíminn er stopp! Klukkan er hætt að ganga og ég er föst hérna til eilífðarnóns! *grenj* Það eru einhverjir brjálaðir krakkar að leika sér með kubbana, mig langar helst að fara og gleyma mér aðeins með þeim ;o) En ég held að það yrði frekar illa liðið af samstarfsfólki mínu. Bangsi er samt búinn að vera að kalla á mig í allan dag, ég verð að spjalla aðeins við hann þegar ég fer í kaffi ;o)
Svo var að rifjast upp fyrir mér að sluppum þokkalega vel hvað aðgangseyri varðar á laugardagskvöldið! Gellurnar sluppu frítt inn á Sportkaffi, ég keypti reyndar miða en ég þurfti ekki að nota hann! Hann á samt örugglega eftir að koma að góðum notum! Svo komumst við líka frítt inn á Gaukinn! Og ég var edrú svo það voru engar færslur á barnum og enginn leigubílakostnaður! Þetta gerist bara ekki betra c",)
Þegar ég mætti í vinnuna í morgun fór ekki á milli mála að skólinn er byrjaður. Það voru milljón og tveir bílar mættir á svæðið og hvergi hægt að finna stæði! Ég er strax búin að gleyma hvar ég lagði...
mánudagur, ágúst 26, 2002
Það rættist nú heldu betur úr þessum vinnudegi! Bara slatti af kúnnum og nóg að gera! SEM ER GOTT! Ég fékk líka inn fullt af peningum sem ég dundað mér við að slétta á morgun... FRÁBÆRT! Það er samt frekar sorglegt þegar maður er ánægður með að fá að slétta peninga. En mér er alveg sama núna, þetta er síðasta vikan og þá er þessu lokið!!! Þá er það bara skólalífið í öllu sínu veldi (",)
Noh... hvað ert þú að svertast í samstarfsmönnum þínum?!?! Segðu mér að það séu sætu læknanemarnir sem þú ert að rugla í ;o) Mig vantar svo að heyra eitthvað krassandi!!! Ég er líka ennþá að jafna mig á því að hún Sweif skyldi ekki vilja Dr.Dodda ;-)

Who's Your Inner Music Industry Diva? Find out @ She's Crafty

Are you a ho? Find out @ She's Crafty
Þúsund þakkir til þín fyrir að finna þessa síðu :o) Núna hef ég eitthvað að gera í vinnunni! Bara fyndið að þú varst Ronald Miller ;o) Spurning um að fara að glápa á þessar 80s myndir á næstunni, ég hef td. ekki séð Girls Just Want to have fun! Svo þarf maður að kíkja á gamla smelli eins og Can´t buy me love, Dirty Dancing og Ferris Beuller´s Day off ;o)

Who's Your 80s Movie Icon Alter-Ego? Find out @ She's Crafty
Well, well, well... þá er einni sótsvartri helgi að ljúka! Vinnudjammið á föstudagskvöldið var bara snilld! Þessar kellingar eru svo sótsvartar að það er unun að fylgjast með þeim! Við vorum varla búin að loka bankanum þegar þær voru búnar að draga upp pelana sína og svo voru þær bara að sötra dræ viskí og koníak og allan andskotann allt kvöldið! Bara kúl :o) Við byrjuðum á að heimsækja Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar! Þar fengum við að skjóta á leirdúfur og það mátti finna nokkra ágæta skotmenn í hópnum! Að því loknu fórum við í klettaskoðun og svo var farið að borða og drekka meira&meira! Við fórum í leiki og tjúttuðum við ABBA og Hits from the 60´s! Svartasta fólkið fór svo að sjálfsögðu niðrí bæ og dansaði frá sér allt vit :o)
Laugardagurinn og afmælisdagurinn var líka alveg frábær (",) Mom&dad komu í bæinn og við fórum saman í IKEA og ég fékk eldhúsborð og stóla í afmælisgjöf! Þau eru sko alveg yndisleg þessir foreldrar mínir :o) Kvöldið átti svo bara að vera rólegt, og var það líka þangað til að Bidda grís (sem var MJÖG ölvuð) vakti mig og plataði mig til að kíkja í borgina! Ég lét tilleiðast og sé ekki eftir því! Jafnvel þótt ég hafi verið bláedrú og á bíl (get ég skutlað þér eitthvað?) Sweif og Magnea komu líka og varð úr þessu hin besta skemmtun :o) Sérstaklega gat ég hlegið að nýjustu pikköpp línunni hennar Biddu: Hey strákur, ertu með stórt tippi? Hann: Já! Hún: Ertu á lausu? Hann: Já! Hún: OK, hitti þig á eftir!
Núna er aftur á móti klukkan orðin margt og útlitið verður svartara og svartara... ég fer að kaupa froðueyði á morgun!
föstudagur, ágúst 23, 2002
Jæja, þá er komið að því og fólkið hérna farið að tala um hass, marijúana og e-pillur!!! IT´S AS BLACK AS IT GETS! Vona bara að ég vakni ekki upp í Færeyjum!
Á þessari síðu rakst ég á eftirfarandi sögu:
Búbbi og Núbíukonurnar
Aðfararnótt laugardags stend ég á Lækjartorgi og er á leiðinni að drulla mér heim þegar ég sé Herjólf Guðbjartsson koma villuráfandi inn frá Hafnarstræti. Við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að ungi maðurinn er allölvi og í hláturs/sjokkkasti og heldur á gulum visakvittunarmiða.
- ENDURGREIÐSLA -
18.750
Hér á eftir er atburðarrásin rakin lauslega: Hann hittir Tóta ded í bænum og þeir fara á Óðal, ekki leið á löngu þar til Hevi í ölæði sínu ákveður að kaupa einkadans. Dansarinn var biksvört Núbíukona og rukkunin var 18.750 kr. í blóði fyrir þrjátíu mínútna brjálæði. „Ég er náttúrulega ekki vanur þessu og þegar hún hafði dillað sér í fimm mínútur áttaði ég mig á því að ég hefði verið að strauja frá mér aleiguna og hugsaði með mér hvað í andskotanum ég væri að gera”. Hann situr inni í tjaldinu og þaulhugsar stöðuna og hvaða leiðir eru mögulegar út úr þessu. Flestir hefðu sætt sig við stöðuna og horft á regndansinn næstu 25 mínútur, en ekki Búffi. Eftir 10 mínútna áform og hugleiðingar stendur hann upp í þjósti, ýtir henni frá sér, rífur upp tjaldið og öskrar: „Hún var að leita á mig, hún leitaði á mig, ég er sjokkeraður, ég fer í blöðin. Ég heimta endurgreiðslu...”
Ég bara verð að segja að mér finnst þetta nokkuð sniðugt hjá kauða ;o)
Ohh... ég öfunda fólk eins og Hillary sem er bara að vinna til hádegis á föstudögum! Það getur ekki verið annað en notlegt að eiga langa helgi :o) Það er samt þvílíkur stemmari í gangi hérna í vinnunni hjá mér í dag (",) Það eru allir í þvílíkum gír fyrir kvöldið! Þessi hópeflisferð á eftir að verða svakaleg, fólkið hérna verður svo létt geggjað þegar það fær sér aðeins í stóru tána ;-) Það kom ein til mín áðan: Jæja, núna eru bara 4 tímar í þetta!!! Pjúra snilld... nema ég, við áttum að mæta með hlý föt, lopapeysu, vindgalla, vettlinga og þess háttar og meira segja vasaljós líka! En minni tókst náttla að gleyma hlýrri peysu! Sem betur fer er ég með bíl þannig að maður getur skotist heim að sækja þetta á eftir! Ég ætti kannski að koma við í apóteki og athuga hvort að þeir eigi eitthvað fyrir fólk sem er með Alzheimer-light! :oþ
Jæja, þá held ég að húsaleigubótaumsóknarferlið sé farið að styttast! Ég náði í eina kvittun hjá Háskólanum áðan. Og hjúkkit að fyrsti maðurinn sem ég sá var vinur Hillarymannsins! Fólk er byrjað að mæta á svæðið. Svo verð ég nú bara að minnast á "ekki" tilvonandi sambýlismann Sweif! Það byrjaði allt í vinnunni hjá mér í gær. Ég var að afgreiða ungan pilt og hann var einmitt að borga húsaleigu fyrir stúdentagarðana. Hann á heima í næsta húsi við mig og var dáldið sætur svo að ég sendi Sweif meil og tilkynnti henni um þennan myndarlega nágranna :) Allt í góðu með það, þangað til að Sweif hringir í mig og tilkynnir mér að hún hafi fengið úthlutað íbúð á stúdentagörðunum. "Frábært" segi ég "og númer hvað ertu?" Og hvað haldið þið??? Þá gefur hún mér upp númerið á íbúðinni sem strákurinn á heima í!!! Núna vorum við orðnar smeykar, gæti hugsast að þetta væri tvíbýli? Ég stekk út og kíki á hurðina á íbúðinni, og viti menn, þá eru tvö nöfn skráð á hurðina! Sweif hafði verið úthlutað íbúð í tvíbýli MEÐ STRÁKNUM SEM ÉG VAR AÐ AFGREIÐA!!! Hverjar eru líkurnar á þessu? Þetta land er OF lítið! Og í ofanálag þá þekkjum við fyrrverandi sambýling stráksins! Svona kreisí tengingar og tilviljanir eru alveg ótrúlega algengar! En þrátt fyrir að ég hafi sagt Sweif að pilturinn væri dáldið huggulegur þá afþakkaði hún íbúðina! Ég sem held að þau hefðu átt svo vel saman ;o)
YoYoYo... Wazzzup?!?!?! Heppí frædei evrívonn ;o) Eriggi allir í stuði?!? Þetta er skipstjórinn sem talar, móður og másandi eftir að hafa labbað að mækinum og lyft vömbinni uppá borð ;-) Egg... EGG!
fimmtudagur, ágúst 22, 2002
Hmm... ég ætla að fara og reyna að brjótast inná síðuna þína!
Það er alveg ótrúlega leiðinlegt ferli að sækja um húsaleigubætur!
Jæja, verður maður ekki að tjá sig eitthvað?!?! Ég er samt í engu bloggstuði, mig vantar sykur! Ég ætti kannski að hlaupa útí sjoppu og kaupa eins og 3 kíló af nammi :o) Ég fór í bíó í gær í góðum félagsskap, það var gaman :o) Fór að sjá nýju íslensku myndina, Maður eins og ég. Hún var alveg ágæt, það var allavega hægt að hlæja helling :o) Yes, we got the silver casette, we sold 2500 copies! Muahahahaha... þetta finnst mér algjör snilld :o) Það er eins og kaninn segir, allt er þrítugum fært!
miðvikudagur, ágúst 21, 2002
Vááá... hjúkkit hvað prófin á þessari síðu eru sótsvört :o) Við erum búnar að hlæja hérna í vinnunni í allan dag :o) Þessi liggur... gramsaðu hann núna! Muahahahaha... Og eitt testið sagði að ég og þú myndum byrja á föstu eftir eitt ár ;o) En ætli þetta sé ekki gott í dag! Ég er að fara að snattast, ætla að fara að reyna að gera eitthvað fyrir nýju íbúðina mína :o)
blablabla...
|
Jæja, núna er ég búin að afgreiða fimm kúnna :o)
Hjúkkit að ég er ekki búin að afgreiða einn einasta viðskiptavin í allan dag!
Muahahahahahaha... þú ert ekki lengi að ná þessu ;o)
Já, það var ekki amalegt þegar ég kom útí strætóskýli eftir vinnu í gær! Það var bara tekið á móti mér með faðmlagi! Ég hitti þar fyrir gamlan kunningja. Hann settist hjá mér í strætó og við fórum að spjalla um lífið&tilveruna! Það sem drengurinn hafði til málanna að leggja var alveg ótrúlegt! Hann er bara fimmtán ára en hann er svo klár í kollinum. Ég held að ég hafi örugglega verið sjö þroskastigum á eftir honum þegar ég var fimmtán!
Mikið er ég fegin að markamaskínan er ekki alvarlega slösuð! ;o)
þriðjudagur, ágúst 20, 2002
Mér finnst þetta alltaf jafn fyndið:
Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, mæli ég með að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega...
1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.
2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.
3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"
5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox"
6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót
7. Fylltu kaffivélina með koffínlausu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.
8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.
10. Ekki nota punkta.
11. Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga
12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.
13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé "taka með".
14. Syngdu með í óperunni
15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.
16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.
17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.
18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock Hard.
19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"
Spurning hvort þú ættir að reyna að grafa upp leiðbeiningar til að panta pizzu ;o)
Já, skólinn er sko greinilega að fara að byrja! Það voru einmitt tveir Hlöðumenn að nota hraðbankann hérna frammi!
Hjúkkit að það eru sótsvartir smiðir að vinna í skólanum á móti "The House on Haunted Hill" Þeir eru búnir að leggja fyrir utan hjá okkur í allt sumar en mér er reyndar alveg flatt sama um það! En í seinustu viku og í gær þegar ég var að koma heim voru þeir voða skemmtilegir og flautuðu á mig! Ég hefði kannski átt að bjóða þeim inn eins og þú baust strákunum á H-24 í heimsókn ;o) En þótt þeir séu smiðir þá langar mig ekkert að smíða með þeim!
Hjúkkit að ég er að fela mig á bakvið tölvuskjáinn (",) Híhíhíhí... þetta er alveg sótsvart! En segðu mér mér meira af þessum skóm vina mín :o) Ertu að fá þá á góðum díl?!?!
Tíhíhíhí... "Meðsíttaðaftan" leigusalinn hennar Elísu er hérna :o)
Rok og rigning... Það er ekkert smá skólalegt veður! Enda er fólk byrjað að fjölmenna á Hlöðuna! Það var stappað á bílastæðunum hjá Hlöðunni í gær, og í morgun var slatti af bílum á svæðinu! Sennilega er fólk líka að lesa fyrir sumarprófin, það er að segja samviskusömu einstaklingarnir sem skrópuðu ekki *hóst* Það verður fínt að fara að mæta þarna aftur og heilsa uppá gamla kunningja eins og Dána frænda, Bak-káfarann, Sigurjón Sighvats, Hillary manninn og vin Hillary mannsins, Sturlu, Bakglennuna, Diktafóninn og co., Bjart í Sumarhúsum (hvernig ætli hafi verið hjá honum í Danmörku!?), Gumma tölvugúru í hawai skyrtunni, vinkonur okkar á nestisstofunni, Harry og Heimi, Áróðursmanninn, Lögfræðinemann, Sexy-Legs, Tæknitröllið, Kaffibrúsakallana og alla hina! Svo eigum við örgglega eftir að "kynnast" fullt af nýju fólki í vetur ;o)
mánudagur, ágúst 19, 2002
Hehehehehe... þetta er BARA fyndið :o)
Muahahahaha... hjúkkit að það komu hérna nokkrir 13 ára krakka sem sögðust vera í fermingarfræðslu hjá Neskirkju. Þau voru vopnuð myndavél og áttu að taka mynd! Ég var beðin um að knúsa einhvern! Ég gat náttla ekki neitað svo að ég knúsaði bara hana Heiðrúnu sem vinnur með mér og krakkarnir tóku mynd af okkur!!! :o) Þetta getur varla verið verra heldur en negramyndirnar sem eru af manni víðsvegar á netinu!!!
Spurning hvort maður ætti að fá sér svona sorasíðu og fara að skrifa ljósblár klámsögur eins og virðist vera voðalega vinsælt þessa dagana?!?! Davíðspenninn er farinn í felur en í staðinn eru tvær gellur byrjaðar að klæmast. Þessi er blaut og þessi er með draumóra!
Hjúkkit að Sweif klikkaði þvílíkt á myndavélinni á laugardaginn! Hún hefði getað nælt í myndir af tveimur celebs, matreiðslumeistaranum Sigga Hall og frjálsíþróttakappanum Jóni Arnari Magnússyni ;o) En hún nældi sér bara í skemmtilegt sár í staðinn :o) Muahahahahahahaha...
Ohh... ég væri sko alveg til í að vera ennþá undir sænginni minni! Ég er eins og illa undin tuska hérna í gjaldkerastúkunni minni! Sem betur fer er ekkert að gera (aldrei þessu vant!) svo að ég get stytt mér stundir á leikur1.is :o)
föstudagur, ágúst 16, 2002
Mamma mín æði :o) Hún keypti diskinn úr myndinni "A Night at the Roxbury´s" :o) Fyrsta lagið á disknum er náttla eitt besta lag allra tíma, smellurinn og diskóhittið 'What is Love' með meistara Haddaway!
Úllalla... það er bara komin helgi :o) Mikið var :o) Ég held að það séu allir að fara að djamma á morgun! Nema kannski Elísa sem þarf að vinna :o(
Muahahahaha... ég held að það sé bara heilmikið til í þessum samanburði á körlum og konum :o)
Hjúkkit að það var starfsmannafundur í morgun sem er varla í frásögur færandi. Nema bossinn lét mig pakka inn konfektkassa í gær til að hafa sem vinning í smá happdrætti meðal starfsmanna. Ekkert mál, ég pakkaði inn kassanum og útbjó umslag með nöfnum allra starfsmannanna. Svo var dregið í morgun eftir fundinn, fyrst var bossinn dreginn út og það þótti nú ekki alveg viðeigandi svo það var dregið aftur og þá var dregin ein sem er í sumarfrí svo það var dregið eina ferðina enn og þá var það ÉG sem var dregin út! Og núna halda allir að það fylgi mér einhver þvílík lukka, ég er næstum farin að trúa því sjálf ;o) Spurning um að spila með í lottóinu á morgun ;o) En nýi bossinn er alveg að fara á kostum, hann er að skipuleggja óvissuferð næsta föstudag og svo verður víst svaka fjör föstudaginn 13. september nk. Það verður auglýst betur seinna en þetta verður einhver samvinna á milli HÍ og LÍ.
fimmtudagur, ágúst 15, 2002
júhú... fimmtudagur búinn, og á morgun er föstudagur :o) Jibbííí... BARA gaman :o) Þá er bara að spenna beltin og bruna í sveitina eina ferðina enn! Ég er búin að vera ýkt mikið í sveitinni þessa vikuna! En það er líka allt í lagi, svona einstaka sinnum ;o) Ég mæli með því að þú farir bara að tsjilla á skrifstofunni hjá Stúdentagörðunum! Þú þarft að kynnast fólkinu aðeins og komast í mjúkinn þarna ;o) Þá færðu kannski íbúð fyrir næstu aldamót!
Ég var að muna að við vorum búnar að henda froðueyðinum mínum! Ég er mikið að spá í að fara að kaupa nýjan, just in case! Better safe than sorry er þagi?
Þessi síða er alveg búin að bjarga mér í dag :o) Leikurinn Mahjongg er mitt uppáhald, reyndar hef ég ekki prófað neinn annan leik á þessari síðu! Ég verð líka svo húkkt á hinum leiknum, bara einn í viðbót og svo einn í viðbót og enn einn og svo annan&annan&annan...
Hvað er eiginlga í gangi kæru bloggsystur?!?! Eruði bara hætta að blogga Clinton og Kópsen? Ér svo lónlí án ykkar... *snökt*
Þú gætir nú haft gaman af að lesa þetta viðtal við Kjartan félaga þinn ;o)
Hjúkkit að ég var að láta spá fyrir mér á netinu og þetta var niðurstaðan:
Ekki leyfa hindrunum fortíðar að eyðileggja annars góðar stundir sem atburðir nútíðar hafa upp á að bjóða.
Ef þú átt erfitt með að flýja reynslu fortíðar er þér ráðlagt að taka á honum stóra þínum og eyða ímynduðum hindrunum sem kunna að standa í vegi þínum.
Þú átt það til að taka nærri þér skoðanir annarra en það tefur aðeins fyrir þér og velferð þinni. Kvíði virðist einkenna líðan þína varðandi framhaldið en þér er bent á að þú ert fullkomlega fær um að hreinsa allar hindranir úr vitund þinni.
Vááá hvað þessi dagur á eftir að vera lengi að líða! Það er ekkert að gera og ég nenni engan veginn að vera hérna! Gamla settið kom loksins heim í morgun :o) Brún og sælleg eftir veruna úti. Ég fékk fullt af nýjum nibbum, þokkalega sátt við það ;o)
miðvikudagur, ágúst 14, 2002
ءغ دشئث هس شعيعق شدي ه مهرث هد هزثمشدي
ُفتثففش ثق شمرثل سفخقسدهيعلفو ثل رخدش ذشقش سي ثل مثديه ثننه ه دثهدع رثسثده!!!
Muahahahahaha... ég ætti kannski bara að blogga svona í framtíðinni?!?!
ش ع ي ع ق
Mikið svakalega getur maður verið klár ;o) Þarna tókst mér að skrifa nafnið mitt á arabísku eða Guð má vita hvaða máli!
Oohhh... ég er ad gufa upp! Og mér finnst bara fyndid thegar madur er búinn ad vera ad skrifa of mikid af SMS-um og gleymir ad nota ð og þ! Kannski ætti madur bara ad halda sig vid althjodlegu stafina?!?! Haetta ad nota kommur og æ&ö?!?!?! Hmmm... thetta er kannski daldid bjanalegt!?!?! *garg* mér leiðist svo hrottalega...
LOL... :o) "How to make love to a Negro" Ég skal gera tilraun til að horfa á þetta með þér, þetta getur varla verið verra en Ö myndin sem við tókum í vetur um andann í flöskunni!
Ef að þetta er ekki kúl blogg þá veit ég ekki hvað! :o)
Gamla settið er ókomið! Pabbi hringdi í gærkvöldi og þá voru þau komin aftur til Orlando! Vélinni var snúið við því að eitthvað viðvörunarljós kviknaði! Þetta þýddi náttla að þau myndu ekki ná vélinni til Íslands frá Boston, þar sem þau áttu að millilenda! Þannig að núna eru þau stökk í Boston, ég myndi svo sem ekkert kvarta yfir því, það er fullt af góðum mollum í Boston :o) En ég held að pabbi sé farinn að þrá að komast heim í vinnunna ;o) Hvað gerir maður annars þegar maður er í sumarfríi í einn dag! Ég ætlaði bara að borða nammi og hlusta á ferðasöguna en núna hef ég bara daginn útaf fyrir mig :o) Er ekki Bidda Grís í vaktafríi í dag? Kannski nennir hún að koma að gera eitthvað skemmtilegt :o)
Ég get nú ekki annað en hlegið að þessu :o) Það er varað við að þetta sé bara til gamans og að niðstöðurnar muni að öllum líkindum ekki lýsa mér, en ég fæ ekki betur séð en að þetta sé bara nokkuð nálægt því ;o) Muahahahahaha...

Find out which Garbage Pail Kid you are!
þriðjudagur, ágúst 13, 2002
Ég vil minna fátæka námsmenn á að umsóknarfresturinn hjá LÍN rennur út þann 15. ágúst nk.!!! Það er bara þægilegt að gera þetta á Form.is :o)
Getur einhver sagt mér hvað ég á að fara að læra?!?!
Þetta land er alltof fámennt! Er normalt að ég er ekki flutt inn í nýju íbúðina mína en ég veit þegar hver einn nágranni minn er! Já, þú veist hvað ég meina mær! Gráhærði dúddinn sem var í afmælinu hjá Keisaranum í fyrra! Hann kom í bankann í gær og í dag! Sem betur fer er hann ekki lengur gráhærður! Ég gæti meira að segja sett link inná bloggið hans en maður verður að vita hvar á draga línuna!
Þvottavélin kom í hús í gær! Ég veit samt ekki alveg hvað ég á að gera við hana, held nebbla að það sé ekki hægt að tengja hana í íbúðinni! Svo gerði ég heiðarlega tilraun í gær til að reikna út hvað íbúðin er stór. Er ekki dæmigert að ég fann ekki málbandið okkar, heldur þurftir ég að skríða um á fjórum fótum með pínulítið saumamálband! Held að hitt málbandið hafi lent heima í Kef eftir Þjóðhátíð ;o) Það er náttla mjög nauðsynlegt að hafa málband í Eyjum ;o) En allavega samkvæmt mínum útreikningum þá er þessi íbúð ekki nema 31fm2! Og í leigusamningnum stendur 36fm2! Ég ætla allavega að láta pabba gamla skoða þetta með mér á morgun.
Ahhh... ég er svo úthvíld að það hálfa væri hellingur! Náði loksins að sofa af mér verslunarmannahelgina! Ætlaði bara að fá mér smá blund kl 18:30 í gær en vaknaði svo bara hress í morgun! Ég sem hélt að gæti ekki sofið svona lengi í einu! En þetta var bara snilld :o)
mánudagur, ágúst 12, 2002
Hehehehe... hjúkkit að það er til síða með slóðina piss.is :o)
Hjúkkit að það var hérna kona frá þýskumælandi Sviss og hún talaði enga ensku svo ég ákvað að sýna færni mína í þýsku ;o) Gekk bara bærilega þótt ég segi sjálf frá :o) Nema hvað hún var svo ánægð að ég skildi tala smá þýsku að hún bablaði heil ósköp og ég skildi ekki helminginn af því! En ég brosti bara, kinkaði kolli og þóttist skilja allt saman ;o) Tíhíhíhí... en núna langar mig alveg svakalega mikið að fara til Þýskalands :oþ Ich liebe Deutschland :o)
JIBBííííííí :o) Ég fæ frí í vinnunni á miðvikudaginn :o) Ég var búin að gæla við að þykjast vera veik en ég er svo mikið tsjikken, ég þori því ekki og samviskan myndi ekki láta mig í friði! Gamla settið er sko að koma heim frá útlandinu þannig að ég ætla bara að vera heima og borða hnetu M&M ;o)
Hjúkkit að ég fæ sent sms til að tilkynna mér að það sé megavika á Domino´s! Eins og það gæti eitthvað farið framhjá mér ;o) En ætli þeir séu farnir að kannast við mann eða vita þeir bara að ég er djönkfúd fíkill?!?! Ég fæ meira að segja líka tilboð á Fanta, "bara" 200kr fyrir 2 lítra!
Fiskurinn var ætur! Sem er gott :o) Ég skil ekki hvað fólkið hérna getur nöldrað yfir matnum, það er ekkert nógu gott! Þau vilja sko helst leggja niður mötuneytið sem er fyrir háskólanemendurna og fá sinn eigin kokk og salatbar! Ég er bara ánægð með að fá frían mat í hádeginu :o)
Noooohhh... Hillary bara að vinna í síðunni! Á maður þá von á einhverjum róttækum breytingum?!?!? Annars verð ég bara að lýsa aðdáun minni á henni Birnu! Hún á náttla hrós skilið fyrir að hafa farið á Gaukinn í bikiní utan yfir fötin ;o) Jafnvel þótt hún hafi síðan farið fljótlega úr því þá var þetta vel gert hjá henni! En það sem mér finnst ennþá aðdáunarverðara er sú staðreynd að hún nennti að vinna hérna í heilan vetur! Ég er búin að vera hérna í tæpa 3 mánuði og ég er alveg að gufa upp! Það er ekkert að gera hérna! Maður verður eitthvað svo sljór og andlaus! Veit ekki hvar ég væri ef maður hefði ekki tekið uppá því að blogga! Ætli maður væri ekki komin með lítinn grænmetisgarð hérna á grasinu fyrir framan Hótel Sögu! Hmm... kannski hressist maður við að fá sér að snæða? Veit samt ekki alveg hvernig mér líst á þessa blönduða sjávarrétti! Ég væri sátt ef þetta væri það sama og ég fékk hjá henni Mörtu í útskriftarveislunni hans Einars! Mmmm... ég fæ bara vatn í munninn :o) Jæja, það kemur í ljós...
Hmm... afhverju ert þú svona happy??? Er eitthvað sem við ættum að vita?!?! ;o)
Ég legg til að allir taki þátt í þessum leik :o)
sunnudagur, ágúst 11, 2002
*blogg,blogg*